Ferill 1081. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2189  —  1081. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um netöryggi.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða samræmdu reglur og viðmið gilda í ráðuneytinu um lykilorð? Hvaða ferlar eru til staðar til að endurskoða þau og bregðast við ef upp kemur gagnaleki eða aðrar hættur varðandi netöryggi?

    Um lykilorð starfsmanna ráðuneytisins gildir eftirfarandi: Tryggt er að lykilorð séu endurnýjuð reglulega og uppfylli fyrir fram ákveðin skilyrði. Sjálfvirkt ferli minnir starfsmenn á aldur lykilorðs og lokar á aðganginn sé því ekki breytt innan tímaramma. Að auki er tveggja þátta auðkenningar krafist þar sem við á. Virkja má sjálfvirkt ferli til að loka aðgöngum og kalla fram endurnýjun tiltekinna eða allra lykilorða ef þörf krefur. Það er ekki talið þjóna markmiðum upplýsingaöryggis í ráðuneytinu að gera ítarlegri upplýsingar um stýringar lykilorða opinberar.
    Þess má að lokum geta að Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins sinnir upplýsingatæknimálum og ýmsum sameiginlegum rekstrarþáttum ráðuneytanna, að hluta eða í heild, með það að markmiði m.a. að stuðla að hagkvæmni, öryggi og góðri þjónustu. Sé óskað frekari upplýsinga um netöryggi eða upplýsingatæknimál í Stjórnarráðinu er hægt að beina fyrirspurnum til Umbru.